Persónuverndarstefna Pling

Síðast uppfært: 16. nóvember 2026

Í stuttu máli: Pling virkar án innskráningar, og þá er allt sem þú setur inn eingöngu í símanum þínum. Ef þú skráir þig inn til að tengja síma fjölskyldunnar geymum við lágmarksupplýsingar á netþjóni innan EES. Við seljum engin gögn, birtum engar auglýsingar og fylgjumst ekki með því hvernig þú notar appið. Þú getur eytt öllu hvenær sem er í appinu.

Ábyrgðaraðili

Brynjólfur Löve ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í Pling.
Netfang: [email protected]

1. Án innskráningar: allt í símanum

Þú getur sett inn fornafn barns, lit og skóla, stundaskrá og hvað þarf að taka með, hver passar á frídögum, eigin frídaga, athugasemdir og stillingar fyrir áminningar. Þetta er eingöngu geymt í símanum þínum. Áminningar eru tímasettar af símanum sjálfum. Við höfum engan aðgang að þessu.

2. Ef þú skráir þig inn (valfrjálst)

Innskráning er bara nauðsynleg til að tengja síma, t.d. við maka, hitt heimilið eða ömmu og afa.

Hvað er geymt á netþjóni:

Hver sér hvað: Fólk á sama heimili sér gögn heimilisins. Amma og afi (hjálparhönd) sjá en geta engu breytt. Ef foreldrar búa ekki saman á hvort sitt heimili. Þá eru bara börnin, skólinn og stundaskráin sameiginleg, og „hver tekur daginn“, athugasemdir og annað á hvoru heimili sést ekki hinu. Umgengni er geymd í hverjum síma fyrir sig, ekki á netþjóninum.

Lagagrundvöllur: Vinnslan er nauðsynleg til að veita þjónustuna sem þú biður um þegar þú tengir síma (samningur, 6. gr. 1. mgr. b-liður GDPR).

3. Það sem appið sækir eða sendir af netinu

HvaðTil hversHvertHvað er sent
VeðurspáMinna á kuldagalla og regnfötMET Norway (Norska veðurstofan)Föst hnit hverfis skólans. Ekki staðsetning símans. Hægt að slökkva á í stillingum.
SkóladagatölNýjustu frídagar án uppfærsluplingapp.is (Cloudflare)Ekkert um þig. Allir símar sækja sömu skrá.
Uppfærslur á appinuLagfæringarExpo (EAS Update)Útgáfa appsins og stýrikerfis.
Innskráning og tenging (valfrjálst)Sjá 2. kaflaSupabase, ÍrlandiGögnin í 2. kafla
Innskráningarkóði (valfrjálst)Senda kóðannResend, ÍrlandiNetfangið þitt og kóðinn

Eins og við allar tengingar á netinu sjá þessir aðilar IP-tölu símans þegar hann tengist.

4. Vinnsluaðilar

Við gerum vinnslusamninga við vinnsluaðila eftir því sem við á. Ef gögn eru flutt út fyrir EES er það á grundvelli staðlaðra samningsákvæða ESB.

5. Hversu lengi

6. Eyða gögnum

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að gögnum um þig, fá þau leiðrétt eða eytt, takmarka vinnslu og fá þau afhent á tölvutæku formi. Sendu beiðni á [email protected]. Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

8. Börn

Pling er ætlað foreldrum og forráðamönnum, ekki börnum. Fornöfn barna eru eingöngu notuð til að birta áminningar og deila þeim með þeim sem foreldrið tengir.

9. Breytingar

Ef stefnan breytist uppfærum við dagsetninguna efst. Ef breytingin skiptir máli fyrir þig segjum við frá henni í appinu.